-
Basilíka (Ocimum basilicum) Basil
Til eru margar tegundir af Basilíkum sem bragðast og ilma ótrúlega skemmtilega. Dæmi eru: Sætbasilíka (sweet basil), Lakkrísbasilíka (basil anise), Kanilbasiliíka (cinnamon basil) og Sítrónubasilíka (lemon basil). Það er ekki annað hægt en að taka aftur fram að ilmurinn er æðislegur sem magnast upp þegar plönturnar eru snertar og því er mjög ánægjulegt að sinna þeim.
-
Tómataplöntur 2024
Eruð þið tilbúin fyrir tómataplöntur?
Þær geta ekki beðið mikið lengur.
Ef þið viljið fá plöntur hjá okkur þá eru þær tilbúnar til afhendingar. Þetta árið erum við með mun færri plöntur en vanalega og því takmarkað upplag í boði. Hægt er að finna meiri upplýsingar um hvert yrki með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan. Stykkið er á þúsund krónur.Mynta (Mentha) Mint
Til eru margar tegundir af myntum, þekktastar eru mynta og piparmynta. Mynta er mikið notuð í drykki eins og mojito eða heitt og kalt te. Einnig gefur hún salati ferskan blæ. Hún bætir lykt í húsum og gefur ferskan andadrátt ef hún er tuggin. Ýmsum meindýrum er illa við lyktina af henni og því sniðugt að hafa hana í kringum grænmetisgarðinn.
Bergmynta (Origanum vulgare) Oregano
Bergmynta er sumstaðar þekkt sem "pizzukryddið". Ef laufin eru þurrkuð og notuð sem krydd þá verður bragðið dýpra og mildara en þegar hún er notuð fersk. Kryddið er notað í ýmsa tómatrétti, á fisk, steikt grænmeti og flest kjöt. Passið að nota ekki of mikið af kryddinu, byrjið smátt.