Bergmynta er sumstaðar þekkt sem "pizzukryddið". Ef laufin eru þurrkuð og notuð sem krydd þá verður bragðið dýpra og mildara en þegar hún er notuð fersk. Kryddið er notað í ýmsa tómatrétti, á fisk, steikt grænmeti og flest kjöt. Passið að nota ekki of mikið af kryddinu, byrjið smátt.

Fjölgun

Til eru nokkrar tegundir af Bergmyntu, margir mæla með "Greek Oregano" vegna bragðgæða. Fræin spíra illa séu þau sett djúpt í jarðveginn. Fræjunum er gott að sá ofan á rakan jarðveg og það má sá þeim nokkuð þétt (1-2cm milli fræja). Eftir að búið er að dreifa fræjunum ofan á jarðveginn er þeim þjappað lauslega niður til að þau snerti jarðveginn örugglega, á þessu stigi er ágætt að spreyja vatni yfir fræin. Að lokum er plastpoka, filmu eða öðru álíka komið yfir pottinn til að halda öllu röku og hann settur á bjartan stað. Gott er að rækta Bergmyntu í mjög drjúpum jarðvegi og því er t.d. gott að blanda um 20-30% af vikri saman við mold eða kókos. Ekki þarf stóra potta en 15-25 cm er ágætis stærð, þó hægt sé að nota bæði minni og stærri potta. Eftir að fræin spíra og kímblöðin eru flest komin upp er plastið fjarlægt og ráðlegt að koma plöntunum í meira ljós.

Umhirða

Bergmyntur þola vel að vera í óbeinu ljósi en vaxa best í mikilli sól. Plönturnar eru harðgerðar og þola íslenskt sumarveður ágætlega og eru því flottar í garðinn og gluggann. Suma yrki ættu jafnvel að geta lifað veturinn af utandyra ef vel er búið að þeim. Ekki er mikil þörf á áburðargjöf en nokkrar mjög daufar áburðagjafir geta ekki skaðað, sumir segja að bragðið verði betra með litlum sem engum áburði. Ef blóm fara myndast er kominn tími á að klippa.

Uppskera

Þegar oregano er uppskorið er gott að klippa stöngla ofan af plöntunum og þurrka stönglana með laufunum. Passið samt að ganga ekki of nærri plöntunum, skiljið allavega eftir nokkra sentimetra af plöntunni svo hún geti vaxið áfram. Laufin eru svo mulin af stönglunum þegar þau eru orðin þurr. Sniðugt er að geyma kryddið í gömlum krukkum eða endurnýttum kryddstaukum og mylja eftir þörfum til að viðhalda bragðinu. Reglulegar klippingar þétta plönturnar og gera þær safaríkari.