Fólk spyr mig oft hvað sé gott að rækta inni hjá sér. Svar mitt byrjar yfirleitt á annarri spurningu: Hvað myndirðu borða? Það er miklu skemmtilegra að rækta eitthvað sem fer reglulega á diskinn en að velja plöntu bara af því að hún kemst fyrir í gluggakistunni.

Basilíka, salat, smágrænmeti og paprikuplanta á björtum vinnubekk við glugga.
Kryddjurtir, salat og smágrænmeti þurfa lítið pláss. Paprikuplanta þarf stærri pott og góða birtu til að bera aldin.
Mynd: RBHMMX · CC BY 4.0.

Ég heyri oft fólk segja að það drepi allar plöntur sem það eignast. Stundum fær plantan of mikið vatn, stundum of lítið, og birtan skiptir auðvitað líka máli. En mér finnst áhuginn oft gleymast í þessu. Ef plantan stendur bara í horninu og manni finnst lítið gerast er auðvelt að gleyma henni. Það er kannski ekkert sérstaklega spennandi byrjunarverkefni að bíða eftir næsta blaði á monsterunni.

Þess vegna finnst mér kryddjurtir og salat svo skemmtileg byrjun. Við góðar aðstæður sér maður breytingar frá einum degi til annars, ný lauf koma fram og plantan verður stærri. Maður fær ástæðu til að kíkja á hana og fylgjast með hvernig henni gengur. Svo kemur umbunin reglulega á diskinn. Nokkur basilíkublöð út í matinn eða salat sem maður tíndi sjálfur gera þetta að allt öðru verkefni en að muna bara eftir að vökva pott.

Í stuttu máli

  • Byrjaðu á því sem þú notar í eldhúsinu og veldu síðan tegund eftir birtu og plássi. Skoðaðu líka yrkið, það er tilbrigðið sem heitir ákveðnu nafni á fræpokanum eða plöntumerkinu.
  • Af kryddjurtum og salati má tína lauf án þess að bíða eftir blómum eða þroskuðum ávöxtum.
  • Tómatar og paprikur þurfa meiri birtu og yfirleitt meira rými en lítill kryddjurtapottur.
  • Bjartur sumargluggi og sami gluggi um miðjan vetur eru tvær ólíkar ræktunaraðstæður.
  • Nokkrar hraustar plöntur eru góður byrjunarreitur. Það má alltaf bæta við þegar maður hefur lært á þær.

Basilíka og aðrar kryddjurtir

Af kryddjurtunum mæli ég sérstaklega með basilíku. Hún vex hratt þegar hún fær góða birtu og hlýju, er bragðgóð beint af plöntunni og hægt er að þurrka hana til geymslu. Svo eru til margar bragðgerðir. Það eitt getur verið næg ástæða til að prófa fleiri en eina.

Mynta er önnur skemmtileg planta. Notagildið er kannski ekki jafn víðtækt hjá öllum, en það er frábært að geta tínt ferska myntu út í drykkinn. Hafðu hana gjarnan í eigin potti svo hún fái sitt rými. Timjan, rósmarín, sítrónumelissa og kóríander eru líka þess virði að skoða, þó vöxtur og umhirða séu ólík.

Það þarf ekki að vökva allar kryddjurtir eins. Mynta og basilíka þola til dæmis illa langvarandi þurrk, en timjan og rósmarín þurfa að losna við umframvatn og eiga ekki að standa síblaut. Notaðu potta með götum á botninum og tæmdu vatn sem safnast í undirskálina. Ef þú setur margar tegundir í sama ílát skaltu velja þær eftir svipuðum þörfum, ekki aðeins því hvað þær eru fallegar saman. Í kryddjurtahlutanum má lesa meira um einstakar tegundir.

Salat sem maður notar

Þegar ég rækta salat heima eykst salatneyslan mín umtalsvert, einfaldlega vegna þess að það er alltaf eitthvað til að tína. Það er ágætis ástæða til að gefa salatinu pláss.

Veldu hvort þú vilt tína ung lauf eða rækta fullvaxinn haus. Salat sem á að tína ungt má rækta þéttar og uppskera fyrr, en stórar plöntur þurfa meira pláss fyrir bæði rætur og blöð. Ekki miða allar gerðir salats við sama litla pottinn. Hægt er að tína ytri lauf af hentugum yrkjum eða sá litlum skömmtum með millibili svo allt verði ekki tilbúið á sama degi.

Mikill hiti og þurrkur geta gert salatið beiskt og flýtt fyrir því að það fari að mynda blómstöngul. Það er kallað að salatið hlaupi í stöngul. Sjálfur hef ég leyst bragðvandann með fetaosti yfir salatið. Það er auðvitað eldhúsráð, ekki lausn á ræktunaraðstæðunum. Ef laufin verða beisk er samt skynsamlegt að skoða hita, vökvun og hvort plantan sé komin á blómgunarstig.

Paprikur og chilí

Paprikur og chilí geta verið skemmtilegar í inniræktun. Ég mæli sérstaklega með að skoða yrki sem gefa litlar paprikur eða chilíaldin. Mér finnst skemmtilegra að fá eitthvað til að tína oftar en að bíða eftir fáum stórum paprikum. Það er mitt sjónarhorn á verkefnið, en þroskahraðinn fer líka eftir yrki og aðstæðum.

Litlar paprikur eða chilíaldin þýða ekki endilega litla plöntu. Kannaðu fullvaxta stærðina áður en þú velur yrki í gluggakistuna. Paprikuplantan þarf bæði næga birtu og tíma til að gefa uppskeru. Góður suðurgluggi getur nýst yfir bjartari hluta ársins, en fyrir virka vetrarrækt þarf yfirleitt viðbótarlýsingu. Nánar er fjallað um ræktunina í greininni um paprikuplöntur.

Tómatar þurfa sitt pláss

Tómatar geta verið gott inniverkefni ef birtan og rýmið duga. Veldu smávaxið yrki sem er ætlað í potta ef aðstaðan er lítil. Venjuleg hávaxin tómatplanta getur fljótt orðið stærri en plássið sem henni var ætlað, og lítil tómatber segja ein og sér ekkert um endanlega stærð plöntunnar.

Gerðu ráð fyrir aðgengi til vökvunar, stuðningi þar sem þarf og plássi í kringum laufin. Við ræktun innandyra þarf líka að huga að frævun blómanna. Hvert tómatblóm getur frjóvgað sig sjálft, en frjóið þarf að losna inni í blóminu. Hægt er að hjálpa því með því að hrista blómklasana varlega þegar engin skordýr eða vindur sinna því.

Smágrænmeti fyrir stutta ræktun

Smágrænmeti, oft kallað microgreens, er ungt ætilegt grænmeti sem er skorið ofan við ræktunarefnið. Það getur verið skemmtilegt verkefni í litlum bakka, til dæmis radísur eða klettasalat. Þetta eru ekki alveg sömu afurðir og spírur sem eru borðaðar með rót og fræi.

Notaðu fræ sem eru ætluð í þessa ræktun, hrein ílát og hreint ræktunarefni. Plönturnar þurfa ljós eftir spírun, raka og loftskipti; myrkur hornstaður verður ekki góður bara af því að ræktunin er stutt. Fylgdu leiðbeiningum fyrir tegundina og sáðu nýjum bakka þegar þú vilt næstu uppskeru í stað þess að gera ráð fyrir að allar tegundir vaxi aftur eftir skurð.

Birta ræður miklu um valið

Planta getur lifað í glugga án þess að framleiða mikið af ætum laufum eða aldinum. Það er munur á að halda henni á lífi og að rækta hana til uppskeru. Á Íslandi breytist dagsbirtan svo mikið yfir árið að sumarárangur segir ekki til um hvað sami staður skilar í desember.

Viðbótarlýsing getur opnað fleiri möguleika. Veldu ljós eftir ræktunarflatarmáli, dreifingu og þörfum plantnanna, ekki einni almennri wattatölu. Ljósið þarf að ná til laufanna án þess að sviða þau. Nánar er fjallað um ljós fyrir plöntur í greininni um lýsingu.

Byrjaðu á litlu verkefni sem þú hefur lyst á. Ef basilíkan fer í matinn, myntan í drykkinn og salatið á diskinn er ræktunin þegar farin að skila einhverju sem skiptir máli.