Það fer ekki bara eftir hæðinni. Segðu okkur hvað tréð er stórt og hvernig þú vilt hafa ljósin. Við reiknum grófa en gagnlega innkaupaáætlun.
1. Tréð og ljósin
Þetta er fjarlægðin milli hringjanna sem þú vefur um tréð – ekki bilið á milli LED-ljósanna á sjálfri seríunni.
Bil milli LED-ljósa breytir fjölda ljósapunkta, en ekki heildarlengdinni sem þarf til að vefja tréð.
2. Niðurstaðan þín
Áætluð upplýst lengd, með 15% svigrúmi.
Áætluð innkaup: × m = m (um LED-ljós).Þar af eru m umfram ráðlagða lengd. Athugaðu hvort framleiðandi heimili samtengingu sería.
Hversu mikið af jólaljósum þarf eiginlega á tréð?
Það er svolítið merkilegt hvað það getur verið erfitt að átta sig á því hversu langa ljósaseríu þarf á jólatré. Maður horfir á tréð, sem er kannski tæpir tveir metrar á hæð, og hugsar að tíu metra sería hljóti nú að vera meira en nóg. Svo byrjar maður að vefja ljósunum og er varla kominn hálfa leið upp áður en serían klárast.
Ástæðan er einföld. Það er ekki bara hæðin sem skiptir máli heldur líka breiddin og hversu þétt við viljum hafa ljósin. Grannvaxið tré og breitt, þétt tré geta verið jafn há en þurft mjög mislangar seríur.
Fjöldi ljósa segir ekki alla söguna
Þegar við kaupum jólaljós er oft stór tala á umbúðunum: 200, 400 eða jafnvel 1.000 LED-ljós. En hversu mikið segir sú tala okkur eiginlega?
Tökum tvær seríur með 200 ljósum. Á annarri eru 5 cm á milli ljósanna en á hinni 10 cm. Sú fyrri er um 10 metrar en hin um 20 metrar. Þarna erum við með jafnmörg ljós en tvöfalda lengd.
Þess vegna er mikilvægt að skoða bæði lengd seríunnar og bilið milli ljósanna. Þéttari ljós gefa annað útlit en dreifðari, jafnvel þótt heildarfjöldi ljósanna sé sá sami.
Og passaðu að skoða upplýstu lengdina, ekki bara heildarlengdina með tengisnúrunni. Tengisnúran hjálpar lítið þegar kemur að því að lýsa upp tréð.
Hvernig reiknar reiknivélin þetta?
Reiknivélin hér fyrir ofan notar hæð og breidd trésins til að áætla hversu langan streng þarf til að þekja það. Síðan tekur hún mið af því hvort þú vilt vefja ljósunum í hringi eða leggja þau upp og niður, og hversu langt á að vera á milli þeirra.
Ef þú vilt hafa ljósin innar í trénu þarf yfirleitt lengri seríu en ef þau liggja eingöngu á ystu greinunum. Reiknivélin notar grófa viðbót fyrir það, því tré eru misjöfn og engin leið að vita nákvæmlega hvernig þú leggur ljósin.
Að lokum bætir hún við 15% svigrúmi. Þetta er því áætlun til að auðvelda innkaupin, ekki nákvæm mæling á hverri einustu grein.
Nokkur ráð áður en ljósin fara á tréð
Gott er að prófa ljósaseríuna áður en byrjað er að hengja hana upp. Það er heldur leiðinlegt að vera búinn að koma henni fallega fyrir og uppgötva svo að hún virkar ekki.
Ef ljósin eiga að liggja í hringi er yfirleitt þægilegt að byrja neðst og vinna sig upp. Til að fá meiri dýpt má færa hluta ljósanna inn á milli greinanna í stað þess að hafa allt á yfirborðinu.
Ef nota á fleiri en eina seríu þarf líka að athuga hvort framleiðandinn leyfi að þær séu tengdar saman. Það er ekki sjálfgefið.
Og að lokum: Það er sjaldnast vandamál að eiga nokkra metra afgangs. Það er öllu leiðinlegra að standa með hálft jólatréð óupplýst og þurfa að fara aftur út í búð.
Íslenska
English