Fólk segir oft við mig að það drepi allar plöntur. Ég held að í mörgum tilfellum sé fólk annaðhvort að vökva of mikið eða of lítið. Svo getur plantan staðið á stað sem okkur finnst rosa fínn en henni finnst ekkert sérstaklega góður. Kannski er bara allt of lítið ljós þar.
Það hjálpar að vita aðeins hvað plantan þarf og hvers vegna. Aloe vera og tómataplanta þurfa báðar vatn, en það væri nú ekkert sérstaklega góð hugmynd að vökva þær alltaf jafn mikið. Aloe vera má þorna á milli á meðan stór tómataplanta í sól getur verið alveg ótrúlega þyrst. Það þarf því aðeins að læra á plöntuna sem maður er með.
Grunnurinn er samt sá sami. Ljós, vatn, loft, næring, hæfilegur hiti og pláss til að vaxa. Þessir hlutir þurfa að vinna saman. Það þýðir lítið að bæta við áburði ef það sem vantar er ljós. Hér skulum við fara aðeins yfir þetta, svo það verði auðveldara að átta sig á hvað plantan þín gæti verið að biðja um.

Mynd: RBHMMX · CC BY 4.0.
Í stuttu máli
- Ljós: Plantan þarf nægt ljós til ljóstillífunar.
- Vatn: Vatn heldur plöntunni stinnri, flytur næringarefni og tekur þátt í ljóstillífun.
- Loft: Blöðin þurfa koltvísýring og lifandi frumur þurfa súrefni, líka í rótunum.
- Næring: Plöntur þurfa mörg frumefni, en meira er ekki alltaf betra.
- Hiti: Kjörhiti fer eftir tegund, vaxtarstigi og birtu.
- Rými: Lauf og stönglar þurfa pláss, ljós og loftflæði. Ræturnar þurfa líka rými.
Ljós
Plantan notar ljósið til að búa til sykrur úr vatni og koltvísýringi. Þetta kallast ljóstillífun og er grunnurinn að vextinum. Áburðurinn kemur ekki í staðinn fyrir ljósið, sama hversu góð næring er í flöskunni.
Það getur verið bjart og notalegt í stofunni okkar en samt allt of dimmt fyrir plöntu sem á að vaxa hratt eða gefa aldin. Tómataplanta þarf til dæmis miklu meiri birtu en margar stofuplöntur. Ef hún teygir sig í átt að glugganum og verður löng og veikbyggð er ástæða til að skoða hvort hana vanti ljós.
Hér á Íslandi er svo mikill munur á sumri og vetri. Samkvæmt minni reynslu getur vetrarbirtan í glugganum haldið lífi í sumum hægvaxta stofuplöntum, en ég myndi ekki treysta á hana fyrir forræktun eða hraðan vöxt tómataplantna og paprikuplantna. Þá þarf raflýsingu til viðbótar. Hún er fyrst og fremst til að gefa plöntunni ljós til vaxtar. Hitinn er annað atriði sem þarf að huga að sérstaklega.
Það þarf líka að venja plöntur við sterkari birtu. Planta sem hefur staðið inni í hálfgerðum skugga getur fengið sviðin blöð ef hún er sett beint í sterka sól. Í greininni um lýsingu förum við betur í hvað hentar heima og hvernig má koma ljósinu að plöntunum.
Það skiptir líka máli hversu lengi er bjart og hversu löng nóttin er. Hjá sumum tegundum ræður þetta miklu um hvenær plantan fer úr því að vaxa mest í lauf og stöngla yfir í að mynda blóm. Sumar blómstra við langa daga, aðrar þurfa stutta daga og langar, órofnar nætur í myrkri. Enn aðrar eru ekki háðar ákveðinni daglengd til að blómstra. Plantan getur þó haldið áfram að vaxa um leið og hún blómstrar. Þetta er því ekki alveg eins og að ýta á einn takka og skipta um ham.
Þess vegna er ekki sjálfgefið að best sé að hafa ljósin kveikt allan sólarhringinn. Tímastillir er þægileg leið til að gefa plöntunum reglulegan dag og nótt, en lengd lýsingarinnar þarf að passa við það sem þú ert að rækta.
Vatn
Vatnið heldur plöntunni stinnri, flytur næringarefni og er eitt af hráefnunum í ljóstillífun. Mikið af vatninu sem hún tekur upp fer síðan út um örsmá op á blöðunum sem vatnsgufa. Þessi op heita loftaugu og ferlið kallast útgufun. Það er því alveg eðlilegt að stór planta með mikið laufverk þurfi mikið að drekka.
Hversu mikið fer eftir plöntunni og aðstæðunum. Stór tómataplanta í sól getur drukkið hratt á meðan lítil planta á dimmum stað notar miklu minna vatn. Stærð pottsins og rótarbeðsefnið skipta líka máli. Mér finnst því betra að fylgjast með rakanum í pottinum og læra á plöntuna en að ákveða að allar plöntur fái vatn á sunnudögum.
Aloe vera þarf til dæmis vel framræst rótarbeð sem fær að þorna milli vökvana. Tómataplanta vill jafnari raka og það getur skaðað hana að láta rótarbeðið þorna alveg. En ræturnar þurfa líka súrefni, sem leiðir okkur að næsta atriði.
Loft
Plantan notar loftið bæði ofan og neðan við yfirborð rótarbeðsins. Blöðin taka upp koltvísýring úr loftinu og nota hann við ljóstillífun. Lifandi frumur plöntunnar þurfa líka súrefni til að nýta orkuna úr sykrunum. Það á við um ræturnar alveg eins og aðra hluta hennar.
Í moldarpotti er loft í bilunum milli agnanna. Ef þessi bil haldast full af vatni getur súrefnið orðið af skornum skammti og ræturnar skemmst. Þær taka þá verr upp vatn og næringu og verða viðkvæmari fyrir sýkingum. Þarna tengjast vatn og loft, en þetta eru tvær ólíkar þarfir. Í vatnsræktun getur súrefni komið að rótunum uppleyst í vatninu og, eftir kerfi, úr loftinu í kringum þær. Hringrás sem eykur snertingu vatns og lofts, til dæmis þegar vatnið fellur aftur í tankinn, og loftun geta hjálpað við að endurnýja súrefnið.
Loftið í kringum blöðin skiptir líka máli. Hófleg lofthreyfing hjálpar til við loftskipti og að forðast kyrrstætt, rakt loft inni í þéttu laufverki. Það þarf samt ekki að setja stofuplöntuna í vindgöng. Nánar um vatn og súrefni við ræturnar.
Hiti
Hiti hefur áhrif á hversu hratt plantan vex og þroskast, en meira er ekki alltaf betra. Paprika kann vel við hlýju á meðan salat getur vaxið ágætlega við svalari aðstæður. Of mikill hiti getur dregið úr vexti og valdið vandamálum þótt plantan fái nóg vatn.
Hitinn getur líka haft áhrif á blómgun. Salat getur til dæmis farið fyrr í blómstöngul í hita og löngum degi, þegar við hefðum frekar viljað halda áfram að fá falleg salatblöð. Aðrar plöntur þurfa kuldatímabil áður en þær geta blómstrað. Þetta fer eftir tegundinni og því á hvaða vaxtarstigi hún er.
Svo er ekki alveg sama hvenær sólarhringsins er hlýtt. Hjá mörgum tegundum getur hlýrri dagur en nótt ýtt undir lengri stöngla og meira bil milli laufanna. Ef dagurinn er svalari en nóttin getur það dregið úr þessari lengingu og plantan orðið þéttari. Þessi áhrif eru kölluð DIF og eru missterk eftir tegundum. Meðalhitinn yfir sólarhringinn skiptir líka máli. Þetta er því ekki almenn ráðlegging um að hækka hitann heima á nóttunni, heldur dæmi um að hitinn getur mótað vaxtarlagið líka.
Heima myndi ég byrja á að athuga að plantan standi ekki við kaldan glugga eða beint yfir heitum ofni og að birtan dugi miðað við hitann. Hlý stofa með lítilli vetrarbirtu getur gefið langan og veikburða vöxt. Þá er lausnin ekki endilega meiri hiti.
Næring
Plantan býr til sykrur með hjálp ljóssins en þarf líka ýmis frumefni til að byggja upp og starfrækja lauf, rætur, blóm og aldin. Sautján frumefni eru almennt talin nauðsynleg fyrir plöntur. Kolefni, vetni og súrefni koma að mestu úr lofti og vatni. Hin næringarefnin tekur plantan fyrst og fremst upp um ræturnar.
Í mold geta næringarefnin þegar verið til staðar. Pottamold er oft seld með áburði í, en sá skammtur endist ekki endalaust. Í rótarbeðsefnum eins og steinull þarf hins vegar að sjá plöntunni fyrir næringu með vökvuninni. Það skiptir því máli hvað er í pottinum, ekki bara hvaða planta stendur í honum.
Það þarf samt ekki að finna einhverja leynilega töfraformúlu til að byrja að rækta. Hentug alhliða næring og rétt blöndun samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans eru góður upphafspunktur. Fyrir vatnsræktun þarf næringin að henta þeirri aðferð og sjá plöntunni fyrir öllum nauðsynlegum steinefnum. Planta í örum vexti notar yfirleitt meiri næringu en planta sem vex lítið vegna takmarkaðrar birtu. Ekki tvöfalda skammtinn bara af því að þig langar í tvöfalt stærri plöntu. Of sterk næring getur skaðað ræturnar.
Plöntur þurfa mismikið af hverju næringarefni. Köfnunarefni er meðal annars notað í prótein og blaðgrænu, en kalíum kemur við sögu í vatnsbúskapnum. Snefilefnin þarf í miklu minna magni, en þau eru samt nauðsynleg. Það dugar því ekki að gefa mikið af einu efni ef annað vantar alveg. Við viljum hafa öll nauðsynleg efni til staðar í hæfilegu magni.
Ef plantan lítur illa út er heldur ekki sjálfgefið að hana vanti áburð. Skoðaðu birtuna, vökvunina og ræturnar líka. Í næringargreininni förum við betur í hvað efnin gera og hvernig plantan nær í þau.
Rými
Það er auðvelt að gleyma plássinu þegar maður kemur heim með litla og sæta plöntu. Svo líða nokkrar vikur og tómataplantan er farin að leggja undir sig gluggann. Hugsaðu því aðeins um hvað plantan verður stór, ekki bara hvort potturinn passi á bekkinn í dag.
Ofan við pottinn þarf laufverkið að komast að ljósi. Ef plönturnar standa of þétt skyggja þær hver á aðra og loftið hreyfist síður á milli blaðanna. Það þarf líka að vera hægt að komast að til að vökva, skoða laufin og tína uppskeruna. Hávaxnar plöntur geta þurft stuðning og pláss upp á við.
Ræturnar þurfa sitt rými líka. Lítill pottur heldur litlum vatnsforða og stór planta getur drukkið hann upp ótrúlega hratt. Stærri pottur getur því gert vökvunina miklu þægilegri. En það er óþarfi að setja örlitla sáðplöntu beint í risapott sem helst blautur lengi. Stækkaðu pottinn eftir því sem ræturnar vaxa og ná utan um rótarbeðsefnið.
Í vatnsræktun getur sjálfur potturinn verið lítill ef ræturnar vaxa út úr honum og fá rými í kerfinu. Stærð pottsins ein segir því ekki alla söguna. Aðalatriðið er að ræturnar hafi aðgang að vatni, næringu og súrefni og laufverkið að birtu.
Næsta skref
Byrjaðu á að athuga ljós og vökvun, því þar liggja mörg algeng vandamál. Skoðaðu síðan hitann, ræturnar og næringuna. Breyttu einu atriði í einu þegar hægt er. Þannig sérðu betur hvað hafði áhrif.
Sjá einnig
Upprunalega birt: 8. febrúar 2023. Síðast efnislega yfirfarið: 9. október 2026.
Íslenska
English